Tjáningar mínar

Inni í hinum myrkustu svæðum reynist alltaf ljós!

31.10.2007 16:29:20 / maggig

Það er allt ómögulegt

Fyrsti snjórinn er kominn sem er ekki gott því að það eru göt á botninum á skónum mínum þannig að ég er krónískt blautur í lappirnar.
Fyrsti prófkvíðinn er líka kominn sem er ekki heldur nógu gott því að þá verð ég stressaður.
 
Góðu fréttirnar eru þær að fyrsti snjórinn er líka farinn sem er gott þannig að núna er bara bleyta úti, ég er samt enn þá krónískt blautur í lappirnar. Spurning um að kaupa sér skó.
Fyrsti prófkvíðinn er líka farinn sem er gott því nú er ég ekki lengur stressaður en í staðinn nenni ég ekki að læra.

Ég er búinn að drekka svoldið mikið kaffi og er mjög hyper þannig að ég veit ekkert hvað ég á að gera. Get samt ekki farið út því þá verð ég blautur í lappirnar, þess vegna er ég að blogga. Kannski að ég nenni að læra í staðinn. Kemur í ljós.


Kannski að ég fái mér bara meira kaffi, þá hef ég allavegana eitthvað að gera.

Þangað til næst að ég fæ mér mikið kaffi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 22:49:20 / maggig

Viltu góðu eða slæmu fréttirnar fyrst?

Ég fékk tvö bréf í dag sem ég vissi svona nokkurn vegin hvað myndu innihalda. Ég velti því mikið fyrir mér hvort að ég vildi góðu fréttirnar eða slæmu fréttirnar fyrst og ákvað að lokum að kíkja á þær slæmu.
 
Þær voru frá sýslumanninum á Seyðisfirði sem sendi mér sektargerð vegna ölvunaraksturs minns þar sem ég var á leiðinni heim daginn eftir Lunga. Ég las í gegnum bréfið þar sem skorað er á mig að mæta upp á lögreglustöð á Egilsstöðum og undirrita sektargerðina og þar sem ég skorast ekki undan áskorunum þá er ég að hugsa um að gera þetta bara. Það versta við þetta bréf var þó að þetta voru verri fréttir en ég bjóst við. Ég hélt að það hefði mælst í mér 0.55 mg/l (sem er 2-falt yfir mörkum) sem þýddi 8 mán. svifting á ökuréttindum og 100.000 kr sekt. Í stað þess mældist 0.56 mg/l sem þýðir 10 mán. svifting og 110.000 kr í sekt. Fúlt að tapa 10.000 kr og missa bílprófið í auka 2 mán. vegna 0.01 mg/l, fari það allt til andskotans. Get þó alltaf huggað mig við að veittur er 25% afsláttur ef sektin er greidd innan 30 daga. Já og á meðan ég man þá auglýsi ég eftir nýrri lifur og nýrum, ef einhver skildi liggja á auka, mitt drasl er greinilega ekki að vinna sína vinnu.
 
Eftir þessar frekar döpru fréttir var komið að hinu bréfinu sem var frá ríkisskattstjóra. Hann tjáði mér það að ég fengi endurgreitt 111.000 kr. Mér líkar betur við ríkisskattstjóra heldur en sýslumanninn á Seyðisfirði.
 
Það sem þetta þýðir þó allt er það að í dag græddi ég 1.000 kr fyrir það eitt að keyra undir áhrifum fyrir einni og hálfri viku síðan :$ Ég er enginn sérfræðingur en ég held að þetta sé ekki alveg eins og réttarkerfið á Íslandi eigi að virka.
 
Svo um helgina verður það Borgó og Norðfjörður í góðum félagsskap þar sem meðal annars Hvanndalsdræður koma fram á Borgarfirði. Það er snilld, þangað til þá.
 
Hilsen, ég.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 18:30:33 / maggig

High-performance

Ég er nú alvarlega farinn að hallast að því að þetta blessaða bloggkerfi sé orðið snargeðveikt. Eins og sést á síðunni þá er ég ekki búinn að blogga í marga mánuði en seinustu daga hafa aldrei fleiri kíkt á þessa síðu. Kannski að umheimurinn sé loksins að fatta hversu merkilegur ég í raun og veru er.

 

Útskriftarferðin var algjör snilld og skemmti maður sér konunglega í þessar þrjár vikur sem hún tók. Þessi mynd var tekin fyrsta daginn í Dubai, hversu mikill ferðamaður getur maður orðið.

 

Túrhestur


Hressir á skíðum
Svo vill ég endilega að þið farið að kalla mig mínu rétta nafni, sem sagt Maggi massaði. Fór í golf í dag og tók mig til og slátraði granít Drivernum hjá pabba í einu upphafshögginu, sló ekki í neitt nema kúluna sem flaug dágóða leið. Og þetta er afraksturinn. High-performance minn rass.
 
Kylfan eftir höggið góða
 
Það er best að fara að éta, svona massaðir menn þurfa að borða.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 15:11:42 / maggig

Þreyttur

Dugnaðurinn er eiginlega alveg að fara með mig þessa vikuna. Ég er búinn að vakana kl 8 alla dagana til að fara í skólann. Búinn að mæta í alla tíma. Búinn að læra allt sem ég þarf að læra og búinn að þvo allt sem ég hef þurft að þvo. Svona duglegur hef ég ekki verið lengi. Þetta kostar líka það að ég er gjörsamlega úrvinda kl 12 á kvöldin en þá sofna ég yfirleitt eins og ungabarn.

Þetta er allavegana það sem hefur kostað líkamlega þreytu. Það er hins vegar allt annað sem hefur kostað andlega þreytu og kvöl síðustu vikuna eða svo. En það er þessi djöfulsins handbolti. Eftir hvern einasta leik er maður gjörsamlega andlega búinn úr spenningi og ég kalla mig heppinn að hafa ekki slasað mig yfir einhverjum leiknum. Allur þessi spenningur náði svo hámarki í gær þegar við töpuðum fyrir Dönum á seinustu sekúndi í framlengingu 40-41. Mig langaði að gráta ég var svo reiður og sár. Braut stól, er örugglega kominn með magasár og fleira. Vonandi að strákarnir standi sig svo bara á móti Rússum á morgun þannig að við spilum þó um 5. sætið.

Jæja best að hætta þessu, er orðinn fúll bara af því að hugsa um leikinn í gær.

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 19:40:56 / maggig

Reykjavíkin

Einn ég sit og blogga,
inn í lítilli íbúð,
enginn kemur að sjá mig,
punktur.

Já lífið í höfuðborginni er rólegt þessa stundina sem er ágætt. Það sem mér tekst að komast yfir á daginn er að vakna, klæða mig, fara í skólann, fara heim, elda mér kvöldmat og sofa. Fábreytt en einfalt og mjög þægilegt svona þessa fyrstu viku. Ég reyndar mundi örugglega gera meira á daginn ef að bíllinn minn virkaði en það er snjór úti og formúludekkin sem eru undir bílnum mínum eru ekki alveg að gera góða hluti.

Það er frekar langt liðið frá seinasta bloggi og það sem hefur á daga mína drifið síðan þá er nú vart frásögu færandi. Má þar heldst nefna prófundirbúning og próf sem gengu alveg þolanlega. Eftir það tók við almenn leti og aumingjaskapur sem stóð fram á aðfangadag og hélt svo áfram eftir jól og fram á áramót. Þá horfði ég á eitt fyndnasta áramótaskaup sem ég hef sé, algjör snilld. Við tók svo meiri leti og aumingjaskapur alveg þangað til að ég kom suður.

En hvað um það, skólinn fer vonandi að komast á fullt skrið þannig að þá fer maður að hafa eitthvað að gera á daginn.

Vonandi

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 23:26:15 / maggig

Kaffoholic

Nú er komið að því. Prófundirbúningurinn kominn í fullan gang og ég er búinn að sitja yfir bókunum, já eða bókinni í þessu tilviki, með kaffibolla í hönd nær allan tímann og er svo statt núna að ég held að ég sé búinn að overdoza af kaffi. Það var þá tíminn, klukkan að verða hálf tólf. Kominn með hausverk af öllu þessu koffíni og er ekkert á leiðinni að getað sofnað. Nú jæja þá kannski lærir maður eitthvað meira. Verður gaman að sjá hvernig ég verð í tíma í fyrramálið klukkan hálf 9, upp víraður og ósofinn jafnvel. Verður gaman að sjá.

Samt voðalega fínt að vera kominn úr þessum verkefnum sem ég er búinn að vera fastur í seinustu vikur. Nú get ég hagað deginum eins og ég vill, ekki fastur í hópavinnu, lært þegar ég vill, tekið pásur þegar ég vill og jafnframt farið í ræktina þegar ég vill. Já þessi prófundirbúnings tími er kannski eins slæmur og ég hélt eftir allt.

Jæja áfram með smjörið, Straumfræði lærist víst ekki að sjálfu sér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 16:05:14 / maggig

Nýtt skipulag

Djöfull er ég ánægður núna. Öll verkefni búin og núna er hægt að einbeita sér að prófundirbúningi sem er mjög gott því að það er mjög takmarkaður tími sem ég hef á milli prófa til að læra eitthvað af viti.

Annars hefur heyrst að Reykjavíkur búar séu ekki á eitt sáttir við skipulag borgarinnar og því hefur verið lagt fram nýtt deiliskipulag fyrir Reykjavík og nágrenni. Mér tókst að grafa þetta skipulag upp og má það sjá það hér.


Persónulega þá líst mér alveg ágætlega á þetta.

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 16:05:10 / maggig

Lærdómur = Þrældómur

Er hægt að finna latari bloggara en mig? Það þyrfti þá að leita helvíti langt held ég.

Málið er að líf mitt frá seinasta bloggi er búið að vera mjög einhæft og alls ekki frásögu færandi. Venjulegur dagur er einhvern vegin á þessa leið.

Vakna og fer í skólann. Fæ mér svo hádegismat og held svo áfram að til um það bil fimm. Gefst upp á að læra og fer í ræktina og þaðan fer ég heim og fæ mér kvöldmat. Að lokum er lagst upp í rúm og glápt á sjónvarpið ef ég fer þá ekki upp í skóla eftir kvöldmat að læra. Svo er farið að sofa og allur pakkinn endurtekur sig daginn eftir.

Ég held að þetta sé ekkert sem fólki langar að heyra um dag eftir dag.

Annars held ég að málið sé að fara og sjá myndina um Borat einhvern tíma á næstunni. Hversu fyndið getur þetta eiginlega orðið.

En það er best að halda áfram að læra. Reyni að verða duglegri við þetta á næstunni.
Bæ í bili.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 17:35:37 / maggig

Iceland Airwaves

Ég er svo sssssáááátttttttuuuuuurrrrr. Lét það verða eftir mér að smella mér á miða á Airwaves 8) sem ég var búinn að sætta mig við að sleppa. En eftir mikla hugsun fram og til baka þá komst ég að þeirri niðurstöðu að ég mundi sjá minna eftir peningnum sem þetta kostar heldur en hátíðinni þannig að þá var bara eitt að gera. Skella sér inn á midi.is og splæsa miða á sjálfan sig.

Ég man eftir því í fyrra hvað mig langaði mikið að fara en fór ekki, þannig að ég hét sjálfum mér því að fara árið eftir sem er einmitt núna. Held að ég hefði orðið reiður út í sjálfan mig ef ég hefði sleppt þessu.

En þá er best að fara gera sig til fyrir herleg heitin.

-Rock´n Roll-

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 18:05:19 / maggig

Undirskrift

Sá merki atburður átti sér stað klukkan rúmlega 10 í gærkvöldi að ég skrifaði undir samning við hið ný upprisna stórveldi í knattraki Hrafnkel Freysgoða. Frétt af atburðinum sem og myndir má sjá á heimasíðu félagsins sem er:

www.blog.central.is/kfkeli

Munum við gera okkar allra besta til að landa hinum eftirsótta verða Malarvinnslubikar sem keppt er um í utandeild Austurlands.

Annars er lítið að frétta, skólinn tekur meiri og meiri tíma frá manni og maður er alltaf að verða duglegri og duglegri í ræktinni þannig að tími fyrir allt annað er voðalega takmarkaður.

Þannig í bili bæ.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 19:55:56 / maggig

Tónlistarmyndbandið hræðilega

Þá er langur dagur í skólanum að baki. Samt er virkilega fínt að taka sér svona tarnir og læra eins og maður getur. Þá finnur maður að þetta er ekkert leiðinlegt og verður fúsari til að endurtaka leikinn.

Samt ástæðan fyrir þessu bloggi er til þess að deila með ykkur þessu hér einstaka tónlistar-myndbandi alla leiðina frá Indlandi. Þvílíka aðra eins snilld er vandfundin og að fólk sé virkilega í geggjuðum fíling og heldur að það sé að meika það er bara fyndið. Það á þó sérstaklega við gæjann sem heldur að hann sé Michael Jackson endurborinn. Einhver ætti að segja honum að Michael sé ekki dauður.

Já og dansinn, takið sérstaklega eftir honum þó að annað sé reyndar ekki hægt, að ógleymdu laginu og söngnum sjálfum.

Wunderbar.


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 22:13:32 / maggig

Veikindi!

Úff, veturinn ekki kominn og veikindi strax farin að segja til sín, sem er frekar skrítið því að venjulega verð ég ekki veikur. Þetta veitir ekki á gott og vonandi er þetta ekki það sem koma skal. Væri fínt ef ég væri bara að taka út öll veikindi vetrarins núna.

Er í smá krísu núna því að ég veit ekki alveg hvort að ég eigi að kaupa mér miða á Iceland Airwaves. Frábær dagskrá, sem má sjá hér, þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. En eina vandamálið er að miðinn kostar 7000 kall. Reyndar hægt að kaupa sig inn á einstaka viðburði en það er engin trygging fyrir því að maður komist að á þann viðburð sem manni langar á. Eitthvað sem ég þarf að skoða aðeins betur. Væri samt mjög gaman að fara.

Annars komst ég að tilgangi lífsins um daginn en hann er hann er Skúrítas. Bara svo að þið vitið það.

Jæja held að það sé best að ég fari og skvetti aðeins meira te í mig til að reyna að losa þetta helvítis kvef úr mér.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 21:34:55 / maggig

???

Eitthvað er maður nú að standa sig illa í þessu bloggi sínu, kannski út af því að það er búið að vera frekar mikið að gera í skólanum og kannski út af leti???? Annað hvort allavegana.

Reyndar hef ég ekki frá neinu merkilegu að segja þannig að þetta blogg er kannski óþarft. Langar samt að segja ykkur frá því að mjög mögulega er ég á leiðinni út til Dubai á næsta ári í útskriftarferð.

Hérna eru nokkrar myndir:

Þetta neðansjávar-hótel er sjúkt.

Því miður verður þessi turn ekki til fyrr en 2008.

Þeir eru nokkuð flottir á því!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 17:48:04 / maggig

Viðbjóður

Heyrði alveg snilldar auglýsingu í útvarpinu um daginn og var hún á þessa leið

,,Viljið þið heyra þennan viðbjóð í útvarpinu aftur?"

Síðan voru spiluð tvö eða þrjú brot úr lögum með Á móti sól. Auglýsingin hélt svo áfram.

,,Kjósum Magna svo að við þurfum aldrei aftur að heyra í Á móti sól."

Mér fannst þetta allavegana frekar gott.

Annars er lítið að frétta, skólinn að komast á fullt skrið og svoleiðis sem er ágætt. Það eina sem vantar núna er dugnaðurinn til að læra á fullu, vona að hann mæti samt á svæðið fyrir próf í desember.


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 19:20:43 / maggig

Maggi súpa klikkar ekki

Ég lennti inn á myndleit á google áðan og ákvað að leita að orðinu maggi og fékk meðal annars upp þessa mynd.

Sweet, þvílíkur kappi.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan